Skemmtilegt og skapandi nám
Á Íslandi eru á annan tug framhaldsskóla þar sem
kenndar eru yfir 60 iðn-, tækni- og starfsgreinar.
Skyldi einhver þeirra höfða til þín?
Námsbókaútgáfa í 70 ár
Iðnskólaútgáfan, nú IÐNÚ, var hugarfóstur frumkvöðla iðnskólamanna sem komu saman árið 1948 og settu á fót Samband iðnskóla á Íslandi, forvera IÐNMENNTAR, og stofnuðu ári síðar bókaútgáfuna.
Yfirlýst markmið IÐNÚ hefur alla tíð verið útgáfa og dreifing námsefnis fyrir iðn-, tækni- og starfsmenntun þó að útgáfa bóka í almennum greinum hafi einnig verið umtalsverð auk kortaúgáfu.