Síðasta skólatöskukynslóðin
kr. 3.990Sú kynslóð nemenda sem nú elst upp, lifir og hrærist í breyttum heimi þar sem tæknin er allsráðandi. Því mætti kalla þessa nemendur síðustu skólatöskukynslóðina því þetta er að öllum líkindum síðasta kynslóð nemenda sem þarf að koma með skólatösku í skólann. Í framtíðinni má búast við að mikið af þeim upplýsingum sem nemendur nota verði að finna í snjalltækjum en ekki í áþreifanlegum kennslubókum, vinnublöðum eða greinum af bókasafninu. Kennarar þurfa því að taka þessum breytingum með opnum huga og vera tilbúnir að tileinka sér nýjan hugsunarhátt í kennslu.
Höfundar: Zachary Walker, Kara Rosenblatt og Donald McMahon
Útgáfuár: 2018
186 bls. / ISBN 9789979674672