Lýsing
Vörunúmer IÐNÚ: 1993100
Millisamtala: kr. 0
kr. 6.990
Lækningabók sjófarenda er kennslubók og handbók allra sjómanna, sérstaklega samin og sniðin af fjarlækningum og nútíma fjarskiptum af læknum með sérþekkingu á heilbrigðismálum sjómanna. Megintilgangur hennar er að veita skipstjórnarmönnum ráð og leiðbeiningar þegar slys eða sjúkdóma ber að höndum um borð í skipum og bátum á hafi úti. Þótt bókin sé ætluð sjómönnum öðrum fremur og miðist við aðstæður um borð í skipum munu hinar greinargóðu leiðbeiningar sem hér er að finna í máli og myndum, geta komið öllum að gagni sem verða að veita sjúku og slösuðu fólki fyrstu hjálp.
Með bókinni er stuðlað að því að allir íslenskir sjómenn, á stórum sem litlum skipum, fái viðeigandi læknishjálp og umönnun þegar þörf krefur.
Höfundar: Ulrik Kirk, Lisbeth Duus og Lars Brandt
Íslensk þýðing og staðfærsla: Kristinn Sigvaldason
Útgefandi: Siglingastofnun
Útgáfuár: 2003
228 bls. / ISBN 9789979945468