Lýsing
Vörunúmer IÐNÚ: ZR-00114
Millisamtala: kr. 0
kr. 6.490
Örverufræði er ein af hliðargreinum líffræðinnar en kennsla í henni hefur aukist mjög á framhaldsskólastiginu á undanförnum árum. Margir þættir örverufræði eru vel fallnir til kennslu í líffræði fyrir þá nemendur sem hyggja á framhaldsnám í skyldum greinum, t.d. læknisfræði, líffræði, hjúkrunarfræði, matvælafræði, meinatækni o.fl.
Bókin fjallar um veirur, gerla, sveppi og frumdýr, sem eru megingerðir örvera. Sérkennum þeirra er lýst, hvernig þær fjölga sér, hver áhrif þeirra eru á vistkerfi jarðarinnar, og þar með talið á menn. Lýst er aðferðum við ræktun örvera. Sjúkdómsvaldandi örverum, einkum meðal gerla og veira, eru gerð greinargóð skil. Í bókinni er ítarlegur listi yfir atriðisorð. Einnig hefur verið gefin út vinnubók með verklegum æfingum í tengslum við kennslubókina.
Höfundur: Bogi B. Ingimarsson
Útgáfuár: 1991
187 bls. / ISBN 9789979806066
Vörunúmer IÐNÚ: ZR-00114
Þyngd | 400 kg |
---|