Lýsing
Vörunúmer IÐNÚ: SA-74887
Millisamtala: kr. 0
kr. 14.520
Samfélagshjúkrun er ný kennslubók eftir Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur. Bókin byggist á reynslu og þekkingu á hjúkrun í íslensku samfélagi og er ætluð til kennslu á 3. hæfniþrepi sjukraliðanáms. Hún miðlar jafnframt þekkingu og skilningi á samfélagshjúkrun almennt, með sérstakri áherslu á geðhjúkrun. Efninu er skipt í þrjá hluta þar sem fjallað er um samfélagið, fjölskylduna og geðheilsu í víðu samhengi.
Bókin var tilefnd til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2021. Í umsögn viðurkenningarráðs segir:
„Þarft kennslurit um samfélagslega brýn málefni sem hefur víða skírskotun og nýtist bæði skólafólki og almenningi.“
Höfundur: Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
Útgáfuár: 2021
480 bls. / ISBN 9789979674887