5.615 kr.
Sæn 203 / Sæns 2BB05, Texter och övningar er sjálfstætt framhald af námsefni fyrir sænskuáfangann Sæn 103/Sæns 2AA05. Námsefnið er ætlað nemendum í íslenskum framhaldsskólum með góða undirstöðu í sænsku.
Námsefnið á að stuðla að því að nemendur haldi við kunnáttu sinni í sænsku, sem þeir hafa oftast fengið eftir dvöl í Svíþjóð. Einnig er gert ráð fyrir að þeir bæti stöðugt við orðaforða sinn, ritfærni og munnlega hæfni, kynnist sænskum bókmenntum og bæti við þekkingu sína á landi og þjóð. Þá er lögð áhersla á öflun efnis og upplýsinga á netinu og úrvinnslu úr því.
Námsefnið inniheldur bæði nýtt og endurskoðað efni, sem er þróað í samstarfi Ingegerd Narby og Sigrúnar Helgadóttur Hallbeck.
No results found
See all books →