Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. — sent samdægurs af lager.

JÆJA 2 – Íslenska fyrir byrjendur

ISBN 9789979675419

5.030 kr.

Jæja 2 er ætluð nemendum sem hafa einhvern grunn í íslensku. Efni bókarinnar er á þyngdarstigi A1-A2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum og bera þemu og orðaforði þess merki. Áhersla er lögð á orðaforða og talæfingar um málefni er standa ungu fólki nær. Mikið er af myndum í bókinni og hentar hún því nemendum óháð uppruna þeirra.

Jæja 2 getur einnig hentað fólki sem hefur meiri grunn í íslensku en vill styrkja orðaforða sinn í íslensku.

Höfundar bókarinnar eru Brynja Stefánsdóttir og Viðar Hrafn Steingrímsson.

Þau hafa áralanga reynslu af tungumálakennslu í framhaldsskólum með áherslu á íslenskukennslu fyrir erlenda nemendur.

Kennsluleiðbeiningar fyrir Jæja 2

Vörunúmer: is-675419 Flokkar: ,
Aðrar vörur

Fleira áhugavert