5.615 kr.
Sæn 103 / Sæns 2AA05, Texter och övningar er námsefni ætlað nemendum með góða undirstöðu í sænsku, sem eru að hefja sænskunám í íslenskum framhaldsskólum.
Námsefnið á að stuðla að því að nemendur haldi við kunnáttu sinni í sænsku, sem þeir hafa oftast fengið eftir dvöl í Svíþjóð. Einnig er gert ráð fyrir að þeir bæti stöðugt við orðaforða sinn, ritfærni og munnlega hæfni, kynnist sænskum bókmenntum og bæti við þekkingu sína á landi og þjóð.
Námsefnið inniheldur bæði nýtt og endurskoðað efni, sem er þróað í samstarfi Ingegerd Narby og Sigrúnar Helgadóttur Hallbeck.
Engar niðurstöður fundust
Sjá allar bækur →