Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. — sent samdægurs af lager.

Víetnömsk-íslensk orðabók

ISBN 9789979672470

2.590 kr.

Þetta er fyrsta bók sinnar tegundar á íslensku.

Við val á orðum í bókina var þess gætt að hún kæmi að góðum notum bæði við nám og í daglegum samskiptum. Víetnömsk málfræði er mjög frábrugðin þeirri íslensku og því fylgja málfræðilegar upplýsingar hverju orði og sums staðar eru gefin dæmi um notkun.

Til að auka notagildi bókarinnar eru í henni leiðbeiningar um íslenskan framburð með hliðsjón af víetnömskum framburði, almennar útskýringar á fallbeygingum og listi yfir fallbeygingar nafnorða, lýsingarorða og sagnorða.

Vörunúmer: vi-00500 Flokkur:
Aðrar vörur

Fleira áhugavert